Heim › ...
Sagnalandið eftir Halldór Guðmundsson - hljóðbók

Sagnalandið

6 klst 9 mín
Mál og menning

Um bókina

Sagnahefðin hefur fylgt Íslendingum frá landnámi. Um ótal staði á landinu hafa spunnist sögur sem svo aftur hafa orðið kveikja ljóða eða skáldsagna. Þessi bók er hringferð um landið með viðkomu á þrjátíu slíkum stöðum, þekktum sem lítt þekktum, sem tengjast höfundum og bókmenntaverkum, þjóðsögum og atburðum úr Íslandssögunni.

Hér má fræðast um basknesku á Vestfjörðum og esperantó á Hala, um áhrif Lakagíga á frönsku byltinguna og tómið ríka og djúpa við Öskjuvatn. Þessi bók er í senn handbók fyrir ferðalanga og reisubók hugans. Ekki spillir fyrir að umhverfi staðanna er tilkomumikið og þar sem fjölbreytt menning og stórfengleg náttúra spila saman – eða takast á – opnast töfraveröld.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr