
Saga eiginkonunnar
Höfundur: Aida Edemariam
Flytjandi: Kristján Franklín Magnús
Um bókina
Í þessari bók segir frá lífi Yetemegnu, ömmu bókarhöfundar. Hún fæddist í norðurhluta Eþíópíu árið 1916. Hún mátti þola ýmsar raunir á langri ævi og barðist ótrauð fyrir réttlæti sér og sínum til handa.
Það voru stormasamir tímar í Eþíópíu: einvaldur keisari tók við af lénsveldi fyrri alda, herir Mússólínis réðust inn í landið, flugvélar bandamanna vörpuðu sprengjum á það, keisaranum var steypt í blóðugri byltingu marxista og grimmileg borgarastyrjöld hófst í kjölfarið. Meðan á öllu þessu gekk sinnti Yetemegnu fjölskyldu sinni eftir bestu getu. Einstök ævisaga ótrúlegrar konu sem missti aldrei kjarkinn þótt á móti blési en jafnframt einstök lýsing á mannlífi í landi sem oft er misskilið. Aida Edemariam er eþíópsk í aðra ættina og kanadísk í hina.
Hún ólst upp í Addis Ababa og nam enskar bókmenntir við háskóla í Oxford og Toronto. Hún hefur síðan starfað sem blaðamaður í New York, Toronto og London þar sem hún er nú greinahöfundur og ritstjóri við stórblaðið Guardian. Saga eiginkonunnar hreppti bæði Jerwood-verðlaunin og The Royal Society of Literature's Ondaatje-verðlaunin í Bretlandi. Aida Edemariam er búsett í Oxford. Karl Sigurbjörnsson íslenskaði.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app