Heim › ...
Ru eftir Kim Thúy - hljóðbók

Ru

2 klst 49 mín
Benedikt bókaútgáfa

Um bókina

Á frönsku þýðir orðið ru lítill lækur, eða í óeiginlegri merkingu eitthvað sem rennur á borð við

tár eða blóð. Á víetnömsku þýðir orðið vögguvísa eða sú sem svæfir og huggar.

Árið er 1968 og stríð geisar í Víetnam. Fjöldi fólks freistar þess að flýja land í von um betra líf.

Þar á meðal er ellefu ára stúlka sem flýr yfirstéttarlíf í Saigon, með viðkomu í malasískum flóttamannabúðum, alla leið til Kanada. Þar verður hún bátaflóttamaður í smábæ og þarf að laga sig að nýjum lifnaðarháttum og nýju tungumáli.

Inn í söguna fléttast örlög fleiri Víetnama, í Saigon og í Kanada, bæði á stríðs- og friðartímum.

Höfundurinn, Kim Thúy, var líkt og sögupersóna verksins ein af „bátafólkinu“ svonefnda og er meðal frægustu höfunda Kanada í dag. RU hefur verið þýdd á fjölda tungumála og unnið til margra verðlauna.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán