Heim › ...
Rimlar hugans eftir Einar Már Guðmundsson - hljóðbók

Rimlar hugans

9 klst 4 mín
Mál og menning

Um bókina

Í ársbyrjun 2002 fékk Einar Már Guðmundsson bréf frá gæsluvarðhaldsfanga á Litla-Hrauni sem sagði honum sögu sína, um leið og hann færði Einari þakkir fyrir verk hans sem hefðu skipt sig miklu máli í fangelsinu.

Þremur árum síðar liggja leiðir þeirra Einars Más saman; fanginn þá að koma úr fangelsi en Einar Már úr áfengismeðferð. Þegar þeir bera saman bækur sínar stígur svo fram, í krafti sagnalistarinnar, hin magnaða og töfrum slungna ástarsaga fangans Einars Þórs og Evu, kærustu hans.

Rimlar hugans er ekki bara óvenjuleg og áhrifamikil ástarsaga tveggja einstaklinga sem lenda í hremmingum eiturlyfja og berjast við að koma lífi sínu á réttan kjöl, heldur er hún um leið frumleg skáldsaga þar sem höfundurinn tekst á við sjálfan sig af fágætri einlægni og hispursleysi.

Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2006.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr