Um bókina

Sagan um Rauðhettu og úlfinn gerist inni í Ævintýraskóginum en eins og Lottu er von og vísa blandast fleiri þekkt ævintýri inn í verkið. Við kynnumst þremur grísum og ævintýrum þeirra þegar úlfurinn ætlar sér að hafa þá í matinn. Svo kynnumst við líka Hans og systur hans Grétu og pabba þeirra sem er Veiðimaður, Norninni og Ömmu gömlu. Fleira skal ekki gefið upp að sinni.

Höfundur – Snæbjörn Ragnarsson Höfundar laga og texta – Baldur Ragnarsson, Gunnar Ben og Snæbjörn Ragnarsson Leikstjóri – Hópurinn með hjálp frá Ágústu Skúladóttur

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán