Ramses 1: Sonur ljóssins eftir Christian Jacq - hljóðbók

Ramses 1: Sonur ljóssins

11 klst 48 mín
Forlagið

Um bókina

Ramses er ungur prins sem stefnir óhikað á sæti faraós en eldri bróðir hans er honum afar erfiður og hættulegur keppinautur. Inn í valdabaráttuna fléttast ástir Ramsess og samband hans við foreldra og vini. Hverjum er að treysta þegar maður vill komast efst í valdastigann?

Ramses II var einn af þekktustu faraóum Egypta, uppi fyrir rúmum þrjú þúsund árum. Hann lét reisa fleiri hof en nokkur annar faraó, meðal þeirra Amonsmusterin í Karnak og Lúxor. Þessi klassíska skáldsaga eftir Christian Jacq, sérfræðing í menningu, sögu og lífsháttum Egypta til forna, er afar spennandi en einnig lifandi og sannfærandi lýsing á þessum framandi og heillandi heimi.

Ramses: Sonur ljóssins birist hér í leiftrandi þýðingu Guðrúnar Finnbogadóttur og frábærum lestri Ólafs Egils Egilssonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán