Heim › ...

Um bókina
Hans Christian Andersen (1805–1875) er þekktasti rithöfundur Dana fyrr og síðar og verk hans hafa verið þýdd og lesin fyrir börn um allan heim. Ævintýri hans eru þó langt frá því að vera eingöngu ætluð börnum – í þeim má finna ýmis siðferðisleg álitamál, flóknar spurningar um tilvist mannsins og listrænan frásagnarhátt sem höfðar til lesenda á öllum aldri.
Hér birtast nýjar þýðingar Kristjáns Jóhanns Jónssonar bókmenntafræðings á 20 ævintýrum H.C. Andersen, allt frá Eldfærunum til Snædrottningarinnar. Kristján ritar einnig eftirmála þar sem hann fjallar um höfundinn og tengsl hans við bókmenntasöguna.
Hvernig virkar þetta?
- 1Kauptu bókina
Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu
- 2Sæktu Sagnaland appið
Fáanlegt í App Store og Google Play
- 3Lestu hvar sem er
Bókin birtist í bókahillunni þinni
Sækja app