
Prakkarinn: Minningar um betri tíma
Um bókina
Jón Kalman Stefánsson segir um bókina:
„Sterling er ellefu ára gamall, hann smíðar sér átján feta indjánabát í dagstofunni, móðir hans er dáin, faðir hans grúskar í bókum og er oft á ferðalögum. Sterling er þó ekki einmana því dýrin laðast að honum, þefdýrið sem gerir allt vitlaust, krákan Edgar Allan Pó, slunginn og ósvífinn þjófur, Voffsi, 75 kílógramma hundur sem má ekkert aumt sjá og sjálfur Prakkarinn, þvottabjarnarungi með fimm svarta hringi í rófunni og augu sem ræna hjarta þínu. Dýrðartímar. Skógar, mýrar, vötn og ár Klettafylkis anda upp af síðunum, ellefu ára strákur og þvottabjarnarungi sofa saman, leika sér saman, borða saman, þeim getur ekki leiðst. Bestu tíma. En víða leynast skuggar. Árið er 1918, það er stríð í Evrópu, bróðir Sterlings er á vígvellinum, drengurinn saknar móður sinnar sárlega og séra Trúmann, eigandi Fordbíls og hatursmaður hesta, hótar að skjóta Prakkarann.
Prakkarinn eftir Sterling North kom fyrst út árið 1963, og er talin sígild í dag. Stundum gefin út sem barna og unglingabók en er ein þeirra fáu bóka sem hittir níu ára barn jafnt sem níræðan öldung beint í hjartastað.“
(PRAKKARINN, bókakápa, Uppheimar 2004)
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app