Heim › ...
Píanóstillirinn eftir Daniel Mason - hljóðbók

Píanóstillirinn

13 klst 48 mín
Vaka-Helgafell/Forlagið

Um bókina

Píanóstillirinn er skáldsaga sem hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda austan hafs og vestan, sem óvenju sterk frumraun. Höfundurinn, Daniel Mason, er ungur bandarískur læknir sem sló óvænt í gegn með þessari sögu en hún þykir búa yfir óvenjulegu seiðmagni og spennu og er á köflum ævintýri líkust.

Sagan gerist á síðari hluta 19. aldar. Ungur Lundúnabúi, Edgar Drake, sem starfar við píanóstillingar, fær harla óvenjulegt verkefni: Að fara heiminn á enda, á vegum breskra hermálayfirvalda, inn í frumskóga Burma. Erindi hans er að gera við flygil í eigu sérviturs herlæknis, sem ílenst hefur í því framandi landi. Píanóstillirinn heldur upp í hina löngu ferð, sem á eftir að reynast í senn heillandi og háskaleg og umbylta sálarlífi hans.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán