Heim › ...
Passamyndir eftir Einar Már Guðmundsson - hljóðbók

Passamyndir

0
Forlagið

Um bókina

„Síðustu daga hefur fjallið leitað á mig eða öllu heldur sumarið á fjallinu.“ Þannig hefst frásögn Haraldar af löngu liðnu sumri þegar hann hélt til Noregs að vinna og ætlaði svo að ferðast um, lenda í ævintýrum og kynnast heiminum; upprennandi skáld þyrsti í lífsreynslu.

En það gleymdist að gera ráð fyrir ástinni sem setur strik í alla reikninga …Passamyndir er ferðasaga, ástarsaga og þroskasaga – því hvað er meira þroskandi en framandi staðir, fólk og tilfinningar? Hér er kraumandi mannlíf og ólgandi æska, stórbrotnar persónur, skemmtisögur, örlög grimm – allt þetta vefur Einar Már Guðmundsson í sinn galdravef af alkunnri list.Sagan sprettur úr frjóum sagnaheimi, frá sömu slóðum og verðlaunabókin sígilda, Englar alheimsins, og ættarþríleikurinn Fótspor á himnum, Draumar á jörðu og Nafnlausir vegir.

Með Passamyndum stækkar sá heimur enn.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán