Heim › ...
P.S. Ég elska þig eftir Cecelia Ahern - hljóðbók

P.S. Ég elska þig

13 klst 57 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

METSÖLUBÓKIN SEM ER ORÐIN KLASSÍK! Sumt fólk bíður allt sitt líf eftir því að finna sálufélaga ... En ekki Holly og Gerry. Þau löðuðust hvort að öðru í æsku og urðu svo samrýnd að enginn gat ímyndað sér að þau yrðu nokkurn tíma aðskilin.

Við andlát Gerrys bugast Holly. En Gerry skildi eftir sig skilaboð til hennar, ein fyrir hvern mánuð ársins og hvert þeirra undirritað: PS: Ég elska þig. Í skilaboðunum reynir maðurinn sem þekkti Holly best að útskýra að lífið heldur áfram. Og með hjálp vina og fjölskyldu lærist Holly smám saman að lífið er til að lifa því. Sigurður A. Magnússon íslenskaði. Írski rithöfundurinn Cecelia Ahern sló í gegn með þessari bók. Hún hefur skrifað nær tuttugu skáldsögur sem komið hafa út í 40 löndum og selst í meira en 25 milljónum eintaka. „Ljúfsár söguþráður sem togar sannarlega í hjartastrenginn.“ – Glamour „Átakanleg, hrífandi flétta og ástarbréf handan grafarinnar – Cecelia Ahern skrifar af öryggi og tilfinningu.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán