
Öxin, Agnes og Friðrik – Síðasta aftakan á Íslandi
Höfundur: Magnús Ólafsson
Flytjandi: Magnús Ólafsson
Um bókina
Sagan af Agnesi og Friðriki og morðinu á Natani Ketilssyni á Illugastöðum hefur lifað með þjóðinni í bráðum tvær aldir. Hér fer sagnamaðurinn Magnús Ólafsson á Sveinsstöðum á kostum í magnaðri frásögn af þessum örlagaríku atburðum en þeir standa honum nær en mörgum öðrum. Þrístapar, þar sem aftakan fór fram, eru í landi Sveinsstaða. Meira en 100 árum eftir aftökuna kom Agnes skilaboðum til afa Magnúsar, sem þá bjó á jörðinni, um það hvar bein þeirra Friðriks lægju og bað um að þau yrðu færð í vígða mold.
Hann fann ásamt Ólafi, föður Magnúsar, líkamsleifarnar og grófu þeir þær upp – og töluðu aldrei um það síðan. Magnús hefur kafað ofan í söguna af morðinu á Illugastöðum, ástæður voðaverksins og örlög helstu persóna og leikenda.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app