
Óttalaus
Um bókina
Óttalaus er lokabókin í þríleik Lauren Roberts sem farið hefur sigurför um allan heim. Listilega vel skrifaður og afar spennandi rómantískur fantasíu þríleikur, hér í frábærri þýðingu Herdísar M. Hübner.
Hún flýði sem svikari en sneri aftur sem tilvonandi brúður.
Vanmennið, Paedyn Gray, hafði búið sig undir dauðadóm en ekki bónorð. Hún hafði drepið konunginn og það hvarflaði hvorki að henni né þegnum landsins að hennar biði hjónaband með Kitt, syni hans. En hlutverk drottningar býður Paedyn tækifæri til að sameina Ilyu og skapa konungsríki þar sem vanmenni og elítur geta lifað hlið við hlið.
Úrslitastundin nálgast og Paedyn á í harðri innri baráttu milli huga og hjarta þegar hún stendur nú frammi fyrir hinni miklu Prófraun. Kai Azer berst allan tímann fyrir henni, jafnvel þótt hann þurfi að bjóða konunginum birginn. Eru hjúskaparheit nógu sterk til að sameina konungsríki? Eða munu svik rjúfa þau? Aldrei hefur nokkurt val verið erfiðara ... eða hættulegra.
Lokahluti hinnar sjóðheitu, rómantísku og spennuþrungnu fantasíu um Paedyn Gray sem hefur slegið í gegn um allan heim.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app