
Orrustan um Salajak
Um bókina
Í fjallakastalanum Salajak, langt norður í landi, vakna vættirnar og breiða út vængi sína eftir langan vetrardvala. Þær hungrar í kjöt, ferskt kjöt ... Á sama tíma strjúka þrír bræður að heiman til að ganga til liðs við árásarherinn sem á að stöðva vættina og binda enda á illvirki þeirra. Þeir ferðast með hernum að Jarmalandi, hyldýpinu handan við Salajak, þar sem gyðjan Hel ræður ríkjum. Orrustan um Salajak gerist í Svíþjóð á fjórtándu öld og er fyrsta bókin af fjórum í Jarmalandskrónikunni. Æsispennandi fantasía þar sem hetjurnar ungu hverfa út í kalda og myrka veröld til að berjast við vætti, álfa og lindorma með hugprýðina eina að vopni.
„Minnir áþreifanlega á Game of Thrones ... Johan Theorin fléttar saman norrænni goðafræði, göldrum og lífinu á miðöldum í blæbrigðaríkri frásögn.“ – Dagens Nyheter
„Frábærlega góð og sannfærandi saga, ótrúlega spennandi.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app