
Um bókina
Örninn og Fálkinn er æsispennandi skáldverk um veruleika sem hefði getað orðið ef herlið Hitlers hefði komið á undan Bretum til Íslands. Stríðið í Evrópu ratar til Íslands þegar nasistar ganga á land í Reykjavík vorið 1940. Sigurður Jónasson, ungur starfsmaður hjá Landsímanum, fylgist með hvernig fólk aðlagast hinu nýja Hitlers-Íslandi, margir græða og þjóðernissinnar sækja í sig veðrið.
En þegar slettist upp á vinskap Hitlers og Stalíns í austri fer vísir að íslenskri andspyrnuhreyfingu að verða til. Hvað er það sem nasistar eru í raun að vilja á Íslandi? Og hvað eru þeirra helstu vísindamenn að gera á hálendinu? Sigurður og félagar hans halda í hættuför þar sem markmiðið er að koma í veg fyrir það sem virðist vera óhjákvæmilegur sigur Þjóðverja í stríðinu. Örninn og Fálkinn er þriðja skáldsaga Vals Gunnarssonar.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 990 kr
Sækja app