Heim › ...
Óreiða á striga eftir Kristín Marja Baldursdóttir - hljóðbók

Óreiða á striga

19 klst 44 mín
Forlagið

Um bókina

Karitas Jónsdóttir fetar aðra slóð í lífinu en fjölskylda hennar og samferðafólk vill marka henni. Ung fór hún í myndlistarnám en lenti í barneignum; eftir tveggja áratuga basl virðist frelsið loksins blasa við. Blóðböndin eru þó sterk og hvort sem leiðin liggur til Eyrarbakka, Parísar, Rómar eða í kvennakommúnu við Laugaveginn í Reykjavík, þá þarf hún að þjóna bæði listinni og ástinni, frelsinu og sínu fólki.

Óreiða á striga er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Karitas án titils sem hlaut frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. Hér er á ferð stórbrotin og kröftug þroskasaga konu sem fer sínar eigin leiðir, en um leið skörp ádeila; þetta er öðrum þræði aldarsaga, saga þjóðfélags í mótun, saga kvenna og frelsisbaráttu, saga um ást og harm og margbrotið mannlíf. Þessi mikla og heillandi skáldsaga er allt í senn; viðburðarík, fyndin og sorgleg, enda hefur höfundur slík tök á lesanda að líkja má við galdur.

Kristín Marja Baldursdóttir hefur verið einn vinsælasti rithöfundur landsins frá því hún sló fyrst í gegn með Mávahlátri. Bækur hennar hafa komið út víða um lönd og hvarvetna fengið frábæra dóma.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr