
Um bókina
Óli Gränz er Eyjapeyi, fæddur á stríðsárunum. Hann bragðaði snemma á alvöru lífsins þegar faðir hans veiktist og hann þurfti að axla framfærslu heimilisins ásamt móður sinni. Hjalli, Hjálmar Guðnason, var besti vinur Óla og félagi. Þeir urðu vitni að upphafi Heimaeyjargossins 23. janúar 1973, en Óli missti þá aleiguna. Þeir Hjalli gerðu út báta, fóru í úteyjar og brölluðu margt. Einkalíf og ástarlíf Óla var stundum umtalað í Eyjum, en hann eignaðist sjö börn á átta árum með fjórum konum. Börnin og barnabörnin eru það dýrmætasta sem hann á í dag.
Óli var farsæll smiður í Eyjum í yfir 40 ár. Hann fór í framboð til Alþingis, var varaþingmaður og sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Óli fékk bókaútgáfu óvænt í fangið og flutti suður. Hann stofnaði leigumiðlun og fasteignasölu og varð bókaútgefandi á alþjóðavísu.
Hér segir Óli frá mörgu sem á daga hans hefur drifið á sinn hispurslausa og skemmtilega hátt. Gleðin hefur alltaf haft yfirhöndina í lífi hans, þótt vissulega hafi stundum gefið á bátinn.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app