Heim › ...
Og svo varð ég forsetafrú eftir Eliza Reid - rafbók

Og svo varð ég forsetafrú

Höfundur: Eliza Reid

Rafbók
Vaka-Helgafell

Um bókina

Eliza Reid rifjar hér upp eftirminnilegan tíma sem forsetafrú Íslands og veitir lesendum innsýn í heim þar sem formlegheitin ráða ríkjum og opinberar heimsóknir og móttökur eru stór hluti af starfinu. Hún lét til sín taka í því sem henni þótti skipta máli, var óhrædd við að tala íslensku með erlendum hreim og hló að eigin mismælum. Hún talaði fyrir jafnrétti kynjanna og gerði góðlátlegt grín að þeirri þversögn að vera fyrst og fremst skilgreind út frá afrekum eiginmannsins.

Í bókinni segir Eliza einnig frá uppvexti sínum í Kanada, árunum í Bretlandi, ferðalögum á fjarlægar slóðir og hvernig það var að flytja til Íslands og verða útivinnandi fjögurra barna móðir.

Eliza Reid er annar stofnenda ritlistarbúðanna Iceland Writers Retreat. Hún hefur starfað við blaðamennsku, ritstjórn og ritstörf og var forsetafrú Íslands á árunum 2016–2024. Hún hefur áður sent frá sér tvær bækur, Sprakkar og Diplómati deyr, sem báðar hlutu afar góðar viðtökur.

Kynning

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%3.390 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.