
Og nú ertu kominn aftur
Höfundur: Jill Mansell
Flytjandi: Sólveig Guðmundsdóttir
Um bókina
Töfrandi kvöld í Feneyjum. Didi verður ástfangin upp fyrir haus – en ástmaðurinn lætur sig hverfa án þess að kveðja. Þrettán árum síðar hittir Didi hann aftur. Enn er líf í glóðum ástarinnar en Didi er staðráðin í að láta ekki afvegaleiðast. Hún er hótelstýra á frábæru hóteli í Cotswolds á Englandi, hamingjusöm og farin að undirbúa brúðkaupið sitt.
En erfitt reynist að halda tilfinningunum í skefjum. Og gömul leyndarmál setja óvænt strik í reikninginn ... Enski verðlaunahöfundurinn Jill Mansell hefur selt meira en 13 milljónir eintaka af bókum sínum – og er einn allra vinsælasti höfundur ljúflestrarbóka í heiminum. Snjólaug Bragadóttir íslenskaði. „Eins og lítil sólskinsbomba – upplífgandi, hugljúf og einstaklega notaleg.“ – Sophie Kinsella „Grípandi og með ólíkindum notaleg.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app