Heim › ...
Ofsóttur eftir Bill Browder - hljóðbók

Ofsóttur

Höfundur: Bill Browder

Flytjandi: Atli Rafn Sigurðarson

Þýðandi: Herdís M

11 klst 10 mín
Bókafélagið

Um bókina

Bill Browder snýr hér aftur með sjálfstætt framhald metsölubókar sinnar, Eftirlýstur. Hörkuspennandi bók sem lýsir því hvernig hann afhjúpaði viðleitni Pútíns til að stela og þvætta hundruð milljarða Bandaríkjadala frá Rússlandi – og að Pútín sé reiðubúinn að drepa hvern þann sem stendur í vegi fyrir honum. Browder dregur hér upp mynd af rússnesku ríkisstjórninni sem glæpagengi sem fer með öll völd í landinu. Ofsóttur er hrikaleg en sönn saga sem gerist í hásölum pólitísks valds þar sem svik, mútur, spilling og misþyrmingar viðgangast hvar sem litið er.

Þetta er í senn saga um fjármálaglæpi, alþjóðlegt ævintýri og ástríðufullt ákall um réttlæti. Ofsóttur er áhrifarík og uppbyggileg saga um það hvernig einn maður getur tekist á við einhvern hættulegasta og ósvífnasta glæpamann í heimi. Lesari er Atli Rafn Sigurðarson.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán