Heim › ...
Óður til lífsins: Skömminni verður að skila eftir Gisèle Pelicot - rafbók

Óður til lífsins: Skömminni verður að skila

Rafbók
Vaka-Helgafell

Um bókina

Í tíu ár hafði eiginmaður Gisèle Pelicot byrlað henni lyf, nauðgað henni og boðið fjölda ókunnugra manna inn á heimili þeirra til að misnota hana á meðan hann tók árásirnar upp á myndband. Þegar lögreglan komst á snoðir um málið fyrir tilviljun rataði það í fréttir um allan heim. Í réttarhöldunum sem fylgdu í kjölfarið krafðist Pelicot þess að þau yrðu opin öllum. Allir áttu að sjá hverjir glæpamennirnir voru, hvað þeir höfðu gert henni og að hún neitaði að bera skömmina.

Í Óði til lífsins segir Gisèle Pelicot frá ævi sinni og óbilandi leit að hamingju, bæði fyrir og eftir að upp komst um glæpi eiginmannsins. Saga hennar er sögð til að veita von, kalla eftir breytingum og sýna fórnarlömbum kynferðisofbeldis hvernig finna megi frið og njóta lífsins á ný.

Ólöf Pétursdóttir þýddi

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%2.540 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.