Heim › ...
Óbragð eftir Guðrún Brjánsdóttir - hljóðbók

Óbragð

8 klst 0 mín
JPV

Um bókina

Óbragð er grátbrosleg ástar- og ferðasaga, full af skrautlegum persónum og skemmtilegum vendingum. Hjalti veit ekki sitt rjúkandi ráð. Kærastan er farin frá honum, hann á bágt með svefn og í ofanálag sér hann ímyndaðar veggjalýs alls staðar.

Það er því þreyttur og tættur maður sem ber að dyrum hjá nágrönnunum til að kvarta yfir hávaða – en þar er honum óvænt tekið opnum örmum og áður en hann veit af er hann kominn á bólakaf í hugleiðslu og kakódrykkju.

En ekki er allt sem sýnist í sjálfshjálparhópnum Kakófylkingunni.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 2.990 kr