
Notuð, nauðgað og seld. Sönn saga
Höfundur: Paulina Bengtsson, Jessika Devert
Flytjandi: Þórey Birgisdóttir
Þýðandi: Berglind Þráinsdóttir
Um bókina
Þegar Paulina er tuttugu og tveggja ára kynnist hún draumamanninum: Jim. Hann er sterkur, heillandi og reiðubúinn að stofna fjölskyldu. Það byrjar sem falleg ástarsaga á netinu en leiðist fljótt út í daglegt líf sem einkennist af hótunum, misnotkun og brengluðum kynferðislegum hvötum.
Í fjóra mánuði er Paulina notuð sem kynlífsþræll og Jim selur karlmönnum aðgang að líkama hennar og þeir mega gera við hana hvað sem þá lystir. Hann verður sífellt öfundsjúkari og með stöðugum hótunum stjórnar hann hverri hreyfingu hennar. Að lokum sér hún enga aðra leið en að fremja sjálfsmorð. Áður en Paulina nær að koma áætluninni í framkvæmd kemst hún að því að hún er ófrísk og sú vitneskja gefur henni styrkinn til að flýja. Nokkrum árum seinna mætir hún geranda sínum fyrir rétti og hann er dæmdur í fangelsi í langan tíma.
Í Notuð, nauðgað og seld segir Paulina sína hrikalegu sögu af langri og erfiðri göngu í átt að eðlilegu lífi.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app