
Nóttin sem öllu breytti
Höfundur: Sóley Eiríksdóttir og Helga Guðrún Johnson
Flytjandi: Sóley Eiríksdóttir
Um bókina
Allir sem muna snjóflóðið á Flateyri 1995 vita hversu gríðarþungt höggið var. Öll þjóðin var harmi slegin. En vitaskuld var áfallið mest og þyngst fyrir Vestfirðinga, Flateyringa – fólkið sem missti heimili sín, ættingja og vini, glataði í senn fortíð sinni og þeirri framtíð sem hefði átt að bíða.
Sóley Eiríksdóttir var ellefu ára gömul, ein heima með systur sinni og vini hennar, nóttina afdrifaríku sem flóðið féll og splundraði húsinu þeirra og mörgum húsum í grennd. Klukkustundum saman lá hún undir snjófarginu meðan örvæntingarfullt björgunarfólk hamaðist við leit í öngþveitinu sem ríkti í þorpinu. Sóley var heppin; hún lifði af. Ekki systir hennar og nítján aðrir.
Hér segir Sóley sögu sína og fólksins síns, sem jafnframt er saga byggðarinnar á Flateyri fyrir og eftir flóð, átakanleg saga en um leið lærdómsrík.
Efnisorð
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.990 kr
Sækja app