
Nornin
Höfundur: Freida McFadden
Flytjendur: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Unnur Birna Backman
Þýðandi: Ingunn Snædal
Um bókina
Sum leyndarmál deyja ekki, þau lúra undir yfirborðinu.
Þegar Julia Barlow missir vinnu sína og íbúð flytur hún tímabundið til Pemberton, aldagamals óðals fjölskyldu sinnar í uppsveitum Massachusetts. Yfirlýstur tilgangur þess er að hún eigi að líta til með aldraðri ömmu sinni en hún vonast líka til að gamla húsið geti veitt henni skjól fyrir hörku heimsins.
Í staðinn fer Pemberton smám saman að brjóta Juliu niður.
Á hverri nóttu stöðvast standklukkan nákvæmlega klukkan 3:41. Ljósin flökta fyrirvaralaust. Og raddlaus vera virðist kalla á hjálp fyrir utan svefnherbergisdyr Juliu.
Þegar Julia fer að grafast fyrir um myrka fortíð hússins kemst hún á snoðir um konu sem var tekin af lífi fyrir galdra árið 1692 – og áttar sig á því að fortíðin hefur kannski ekki sagt skilið við Pemberton. Þegar áratuga gömul fjölskylduleyndarmál koma upp á yfirborðið neyðist Julia til að horfast í augu við ógnvekjandi sannleika: að á óðalinu bergmáli raddir kvenna sem neita að láta þagga niður í sér.
Frá Freidu McFadden, metsöluhöfundi New York Times, kemur Nornin, hrollvekjandi og ófyrirsjáanleg spennusaga um leyndarmál – þau sem við erfum, þau sem við gröfum niður og þau sem fólk gengur mjög langt til að halda leyndum.
Ingunn Snædal þýddi.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 3.890 kr
Sækja app