Heim › ...
miSter einSam eftir Ragnheiður Eyjólfsdóttir - hljóðbók

miSter einSam

6 klst 37 mín
Vaka-Helgafell

Um bókina

Það getur verið erfitt og einmanalegt að vera sonur Hákarlsins, eins umdeildasta manns landsins.

Sammi er kominn í stutt vetrarfrí til Íslands og fer ásamt vinum sínum Ingó og Korra í Örenda, afskekktan glæsibústað fjölskyldunnar. Eyrún, systir Korra, kemur með og svo slæst Sigrún í hópinn – stelpan sem Sammi hefur ekki getað losnað við úr huga sér síðan hann flúði af landi brott.

Þegar eitt þeirra hverfur sporlaust út í vetrarmyrkrið og undarleg atvik skjóta hinum skelk í bringu rennur það smám saman upp fyrir Samma að flóttinn hefur ekki bjargað honum frá vandamálum fortíðarinnar …

Nýjasta bók Ragnheiðar Eyjólfsdóttur, miSter einSam, er hörkuspennandi ungmennasaga sem kemur sífellt á óvart. Ragnheiður hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir bækur sínar á undanförnum árum. Rotturnar, sem kom út 2018, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr