Heim › ...
Minning um óhreinan engil eftir Henning Mankell - hljóðbók

Minning um óhreinan engil

11 klst 22 mín
Mál og menning

Um bókina

1904 yfirgefur Hanna Lundmark með leynd sænskt gufuskip sem liggur við bryggju í stórum bæ í Portúgölsku Austur-Afríku. Fyrir duttlunga örlaganna verður hún eigandi stærsta vændishússins þar. Hún fær samúð með svörtu vændiskonunum og tekur nærri sér að sjá hvernig nýlenduherrarnir koma fram við íbúa landsins en konurnar snúast öndverðar gegn tilraunum hennar til að vingast við þær. Kynni Hönnu af Pedro Momenta, sem gerir út á stöðugan ótta hvíta fólksins, og skelfilegur harmleikur neyða hana til að gera upp við sig hver hún er og hvaða lífi hún vill lifa.

Henning Mankell er óhemjuvinsæll um allan heim fyrir sögur sínar um lögreglumanninn Wallander. Mankell hefur dvalið langdvölum í Afríkuríkjum og nýtir hér þekkingu sína í áhrifamikilli sögulegri skáldsögu um samskipti hvítra og svartra.

Hólmfríður K. Gunnarsdóttir þýddi. Þórunn Lárusdóttir les.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr