Heim › ...
Milljón steinar og hrollur í dalnum eftir Kristín Helga Gunnarsdóttir - hljóðbók

Milljón steinar og hrollur í dalnum

2 klst 4 mín
Kristín Helga Gunnarsdóttir

Um bókina

Í Milljón steinar og Hrollur í dalnum segir frá Heklu sjö ára. Hekla á systurina Kötlu, eins árs, og afar upptekna foreldra, enda á fullu í hinu svokallaða lífsgæðakapphlaupi. Sagan gerist þegar foreldrar systranna sjá færi á því að lyfta sér upp milli anna með því að fara í stutta ferð til Parísar. Ekki væsir heldur um Heklu og Kötlu, því að systurnar dvelja í góðu yfirlæti hjá afa og ömmu á Nornabjargi í Skessudal á meðan foreldrarnir eru í burtu.

Hekla er frísk stelpa með öflugt ímyndunarafl. Á þann eiginleika leikur afi til að forða því að hún fari sér að voða í ánni. Hann spinnur upp kyngimagnaða sögu í ljóðsagnastíl með öllu tilheyrandi, skrímslum, tröllum og huldufólki, og hvikar ekki eitt augnablik frá því að farið hafi verið með annað en berstrípaðan sannleikann.

Frásögnin er skrifuð frá sjónarhóli Heklu og einkennist af frábæru innsæi og gætni nánast hvar sem borið er niður. Hekla er afar lifandi og heilsteypt persóna frá höfundarins hálfu. Stórskemmtilega og æsispennandi saga.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán