Heim › ...

Um bókina
Milli trjánna er safn 47 smásagna sem einkennast allar af þeim áreynslulausa og myndríka stíl sem prýðir verk Gyrðis Elíassonar. Þá kallast umfjöllunarefni þessa safns á við fyrri sögur höfundar. Hér bregður fyrir líkt og áður ýmiskonar óhugnaði og furðum, einsemd, draumum, ferðalögum, bernskuminningum og framtíðarsýnum, auk þeirrar ísmeygilegu fyndni sem lesendur þekkja úr fyrri verkum.
Milli trjánna undirstrikar þó jafnframt þá markvissu þróun sem orðið hefur í sagnaveröld Gyrðis í átt til eindregnari efnistaka, um leið og við erum minnt á grunngildi tilveru okkar í þessum fjölbreyttu en þó heildstæðu smásögum.
Fyrir þessa bók hlaut Gyrðir Elíasson Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app