
Um bókina
Skáldsagan Merking er margradda verk sem fjallar um afstöðu og pólaríseringu, fordóma og samkennd. Þjóðin er klofin í afstöðu sinni til samkenndarprófsins, byltingarkenndrar tækni sem spáð getur fyrir um andfélagslega hegðun; annar helmingurinn vill öruggara samfélag, hinn vill réttlátt samfélag. Aðalpersónur sögunnar hafa öll þurft að laga sig að nýjum siðferðisgrundvelli samfélagsins og fram undan er þjóðaratkvæðagreiðsla sem sker úr um hvort fólki verði gert skylt að gangast undir prófið. Fríða Ísberg gat sér góðan orðstír fyrir ljóðabækurnar Slitförin og Leðurjakkaveður, og smásagnasafnið Kláða sem tilnefnt var til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Merking er fyrsta skáldsaga hennar.
Hvernig virkar þetta?
- 1Kauptu bókina
Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu
- 2Sæktu Sagnaland appið
Fáanlegt í App Store og Google Play
- 3Hlustaðu hvar sem er
Bókin birtist í bókahillunni þinni
Sækja app