Heim › ...
LoveStar eftir Andri Snær Magnason - hljóðbók

LoveStar

7 klst 17 mín
Mál og menning

Um bókina

Alþjóðlega stórfyrirtækið LoveStar hefur komið Íslandi á heimskortið – markaðssett dauðann, komið skipulagi á ástina og reist stórfenglegasta skemmtigarð sögunnar í Öxnadal þar sem LoveStar blikkar á bak við ský. Indriði og Sigríður eru handfrjálsir einstaklingar í þessu hátæknivædda samfélagi. Þau telja sig hafa fundið ástina upp á eigin spýtur þar til hræðilegt bréf berst frá stórveldinu.

Á sama tíma er LoveStar sjálfur um það bil að gera stærstu uppgötvun allra tíma og stemningsdeildin hefur stórfenglegar áætlanir um hvernig megi fullkomna LoveStar veldið. Og tíminn er naumur … Skáldsagan LoveStar eftir Andra Snæ Magnason (2002) var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hún hlaut bæði Menningarverðlaun DV í bókmenntum og Bókaverðlaun starfsfólks bókaverslana.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr