
Löng leið heim
Um bókina
Kim Yong segir átakanlega sögu af lífi sínu í alræmdum vinnubúðum Norður-Kóreu. Þótt vitað sé að gúlag-búðir starfi í landinu eru fáar áreiðanlegar frásagnir til, enda sleppa fangar sjaldnast lifandi bæði úr haldi og úr landi.Í Löng leið heim greinir Kim Yong frá ótrúlegri reynslu sinni sem fyrrverandi undirofursti í norður-kóreska landhernum. Hann naut fordæmalausra forréttinda í samfélagi þar sem ríkið fylgdist grannt með öllum þegnum, ók innfluttum bíl um landið og varð vitni að útbreiddri spillingu á öllum stigum valdsins.
Þegar hann var sakaður um landráð og sviptur stöðu sinni hrundi þessi veröld á svipstundu.Kim var dæmdur í búðir nr. 14 í Hamkyeong-héraði, alræmdustu vinnubúðir landsins, þar sem hann vann myrkrana á milli, 730 metrum undir yfirborði jarðar við ómanneskjulegar aðstæður. Hungursneyð, ofbeldi og grimmd fangavarða mótuðu hvern dag.Eftir sex ár í prísundinni tókst honum með hjálp gamalla vina að til Bandaríkjanna. Saga hans, sem birtist hér í heild sinni í fyrsta sinn, er einstakur vitnisburður um grimmdina sem ríkir á bak við þagnarmúr Norður-Kóreu og um óbilandi baráttu mannsins fyrir reisn og mannlegri sjálfsmynd.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app