
Lokaðu augunum og hugsaðu um eitthvað annað
Höfundur: Anna Lidén
Flytjandi: Gunnella Hólmarsdóttir
Um bókina
Anna Lidén er nýorðin 13 ára þegar hún fylgir strák heim eftir skóla. Anna er fullkomlega venjuleg stelpa, í fullkomlega venjulegri fjölskyldu og gengur í fullkomlega venjulegan skóla í frekar fínu hverfi í Stokkhólmi. Niklas er hvorki óvenjulegur né sérstaklega myndarlegur.
En hann er hávaxinn og skrifar krúttleg skilaboð. Umfram allt er hann 17 ára gamall og opnar Önnu leið til vinsælda og fullorðinslífs.
En þá gerist eitthvað slæmt, eitthvað mjög slæmt, sem Anna skilur ekki alveg. Orðið nauðgun hræðir hana og eitt er alveg ljóst: Niklas hefur gert eitthvað sem maður á ekki að gera.
Þegar hún reynir að segja frá verða allir í kringum hana ráðalausir. Það er eins og enginn trúi henni og Anna sjálf gerir sitt besta til að gera lítið úr því sem gerðist.
Nauðgunin veldur því að veröld Önnu fer hægt og rólega að hrynja. Þegar hún þremur árum seinna hittir nýjan mann sem leggur til að hún selji sig fyrir peninga, sér hún enga ástæðu til að segja nei. Einmitt þá tekur Anna skrefið inn í nýjan heim. Meðal viðskiptavina hennar eru menn úr yfirstétt Svíþjóðar, rithöfundar og stjórnmálamenn. Ferðin til baka í átt að eðlilegu lífi mun reynast löng og þyrnum stráð.
„Lokaðu augunum og hugsaðu um eitthvað annað” er sönn og átakanleg frásögn af því hvernig það er að lifa sem vændiskona í Svíþjóð. En líka af því hvernig hægt er að komast út og sigra djöflana sína.
ANNA LIDÉN (f. 1988) ólst upp í Stokkhólmi og situr í stjórn samtakanna Ekki þín hóra (Inte din hora). „Lokaðu augunum og hugsaðu um eitthvað annað” er fyrsta bók hennar.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app