Heim › ...

Um bókina

Á köldu vetrarsíðdegi fer nágranni að huga að fjölskyldu í Hvalfjarðarsveit sem ekki hefur svarað skilaboðum. Fólkið veit ekki aura sinna tal og hefur komið sér fyrir í afdal utan alfaraleiðar. Nágranninn sér ummerki um mannaferðir en enginn svarar þegar hann drepur á dyr. Eftir að hafa litið inn í húsið hrökklast hann aftur út og kallar til lögreglu. Hvað gerðist hjá þessum nýju ábúendum?

Jafnframt því að fylgjast með rannsókn málsins fær lesandinn að skyggnast inn í líf fjölskyldunnar í aðdraganda þessara voveiflegu atburða þar sem ekki er allt sem sýnist.

Fantagóður krimmi eftir hina óviðjafnanlegu Yrsu Sigurðardóttur, í frábærum lestri Sigurðar Þórs Óskarssonar og Þuríðar Blævar Jóhannsdóttur.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán