
Litla kaffihúsið í Kaupmannahöfn
Höfundur: Julie Caplin
Flytjandi: Sólveig Guðmundsdóttir
Um bókina
Tilnefnd sem besta ljúflestrarbókin í Bretlandi – Romance of the Year Awards 2019 Velkomin í Litla kaffihúsið í Kaupmannahöfn þar sem kanililmur fyllir loftið, heita kakóið er silkimjúkt – og rómantíkin er handan við hornið ... Kate Sinclair finnst líf hennar í London vera fullkomið. Hún á hrífandi kærasta og nýtur velgegngi í starfi.
En þá svíkur kærastinn hana og hreppir sjálfur stöðuhækkunina sem hún hafði sóst eftir. Niðurbrotin fer hún að efast um sjálfa sig og allt – og verður einfaldlega að komast burt. Við kertaljós, notalegar kvöldstundir og rómantískar gönguferðir um fagrar steinlagðar götur Kaupmannahafnar uppgötvar Kate hvernig á að njóta lífsins á danska vísu. Munu leyndardómar hygge-stemningarinnar leiða til eilífrar hamingju? Kristín V. Gísladóttir þýddi. „Frábær, innileg og fyndin bók sem ekki er hægt að leggja frá sér.“ – The Writing Garnet „Það snýst allt um tilfinningar ... ég elska þessa bók.“ – The Cosiest Corner „Einlæg, fyndin og dásamlega hlýleg.“ – Frankly, My Dear ... „Ég er nú þegar búin að lesa hana tvisvar.
Það sýnir best hve mjög ég naut lestrarins.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app