
Litla hafmeyjan
Höfundur: Anna Bergljót Thorarensen
Flytjandi: Árni Beinteinn Árnason, Andrea Ösp Karlsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Anna Bergljót Thorarensen, Þórunn Lárusdóttir, Sigsteinn Sigurbergsson, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir
Um bókina
Sagan um Litlu hafmeyjuna gerist inni í Ævintýraskóginum eins og Lottu er von og vísa en eðli málsins samkvæmt höldum við okkur ekki bara inni í skóginum heldur dýfum okkur á bólakaf í sjóinn sem umlykur hann. Þar kynnumst við hafbúum, þeim Báru, Sævari og Öldu, ásamt ógurlegum kolkrabba sem á gullfiska að gæludýrum. Sagan ber okkur einnig upp á land þar sem þjóðsagan um Hlina kóngsson blandast skemmtilega saman við Litlu hafmeyjuna. Sögurnar tvær fléttast saman í glænýtt ævintýri þar sem drottning, kóngur og ægileg tröll koma einnig við sögu.
Höfundur verksins er Anna Bergljót Thorarensen en þetta er níunda verkið sem hún skrifar fyrir leikhópinn Lottu. Hún semur einnig lagatexta ásamt Baldri Ragnarssyni. Í Litlu hafmeyjunni eru samtals 10 glæný og stórskemmtileg lög sem eru samin af Birni Thorarensen, Rósu Ásgeirsdóttur og Þórði Gunnari Þorvaldssyni.
Sex leikarar flytja Litlu hafmeyjuna: Andrea Ösp Karlsdóttir, Árni Beinteinn, Sigsteinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir og Þórunn Lárusdóttir en þau skipta á milli sín öllum hlutverkunum. Litla hafmeyjan er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman við að hlusta á þetta fallega ævintýri.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app