
Litaland
Höfundur: Anna Bergljót Thorarensen
Flytjandi: Andrea Ösp Karlsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Anna Bergljót Thorarensen, Baldur Ragnarsson, Sigsteinn Sigurbergsson, Rósa Ásgeirsdóttir, Björn Thorarensen
Um bókina
Litaland segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum – eða Gulverjum, Rauðingjum og Bláungum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil, enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig.
Fljótlega dregur þó til tíðinda. Bláungar neyðast til að leita skjóls hjá Gulverjum í Gulheimum, þar sem heimur þeirra bláu er að hverfa og þeir standa eftir án samastaðar. Sú viðkvæma staða leiðir til spennandi og ófyrirsjáanlegrar framvindu.
Í Rauðheimum virðist allt á yfirborðinu vera með felldu. Þar undirbúa Rauðingjar komu nýs litar sem væntanlegur er í hópinn.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app