
Lífsgleði njóttu - sigrastu á áhyggjunum áður en þær sigra þig
Um bókina
Vinsælasta sjálfsræktarbók allra tíma í nýrri útgáfu.
Sigrastu á áhyggjunum áður en þær sigra þig! Áhyggjur snerta líf okkar allra og koma niður á vinnunni, fjármálunum, fjölskyldulífinu og samböndum. Í þessari margumtöluðu og heimsfrægu bók er að finna gagnlegar leiðbeiningar um hvernig megi sigrast á áhyggjunum áður en þær sigra þig.
Dale Carnegie sýnir lesandanum hvernig þúsundir manna úr öllum þjóðfélagshópum hafa unnið bug á áhyggjum sínum og bendir á leiðir til að lifa hamingjuríku og uppbyggilegu lífi.
Meðal efnis er:
Hvernig skal greina og leysa vandamál
Hvernig hægt er að sigrast á þunglyndi
Hvernig hægt er að forðast þreytu og varðveita unglegt útlit
Lögmál sem vinnur gegn áhyggjum
Að breyta ósigrum í sigra
Að láta gagnrýni ekki hindra sig
Sjö leiðir til að öðlast frið og hamingju
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.690 kr
Sækja app