Heim › ...

Um bókina
Fjölskyldufaðir finnst látinn á heimili sínu og virðist hafa fallið fyrir eigin hendi. Við krufningu kemur í ljós örlítið frávik sem breytir öllu. Guðrún Ýr Ingimarsdóttir rannsóknarlögreglumaður tekur að sér málið. Hún er eldskörp en líka þrjósk og rekst gjarnan á veggi kerfisins.
Í ljós kemur að þetta er aðeins upphafið að miklu stærri ráðgátu.
Þræðirnir liggja inn í heim valda, spillingar og leyndarmála sem einhver er tilbúinn að verja með blóði. Í skuggunum bíður sá sem skilgreinir morð ekki sem glæp, heldur list.
Líf er ófyrirsjáanlegur sálfræðitryllir sem kafar djúpt í myrkustu afkima mannlegs eðlis. Reynir Finndal Grétarsson leiðir lesandann inn í hugarheim þar sem sannleikurinn er aldrei einfaldur og siðferði er afstætt.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app