
Leyndardómur byggðarenda
Um bókina
Rannsóknarlögreglumaðurinn Hercule Poirot hvílir sig í fríi á Cornwall-rivíerunni. Friðurinn er rofinn þegar hann hittir heillandi og lífsglaðan ungan erfingja, Magdalu „Nick" Buckley. Hún er húsfreyja sem býr í afskekktu húsi, Byggðarenda, sem ríf við himinn uppi á klettabeltinu. Nick hlær að nýlegum atburðum: bilaðar bremsur senda bílinn hennar á hraðferð í átt að hömrunum, risavaxinn steinn steypist örfáum sentimetrum frá henni á strandstíg og þungt málverk fellur niður á rúmið hennar. Þetta eru aðeins slys fullyrðir hún. Þá uppgötvar Poirot lítið byssukúlugat á sólhatti hennar.
Þrjú nærri banvæn „óhöpp" á jafnmörgum dögum og nú fjórða tilraunin, hættulega nálægt. Einhver er augljóslega staðráðinn í að drepa húsfreyjuna. En hver? Er það einhver í vinahópi hennar, ættingi eða aðdáandi? Með Hastings skipstjóra við hlið sér grípur Poirot inn í til að vernda Nick og leysa blekkingarvefinn áður en morðinginn lætur aftur til skarar skríða.
Leyndardómur Byggðarenda er oft lýst sem einu af snjallari og frægari verkum Christie frá fyrri hluta fjórða áratugarins. Bókin kom fyrst út í Bandaríkjunum og Bretlandi snemma árs 1932 en 1944 á Íslandi. Ári áður hafði hún verið framhaldssaga í tímaritinu Vikunni. Sagan hefur bæði verið kvikmynduð, sett á svið og gerð að útvarpsleikriti.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app