Heim › ...
Leynda kvöldmáltíðin eftir Javier Sierra - hljóðbók

Leynda kvöldmáltíðin

Höfundur: Javier Sierra

Flytjandi: Arnar Jónsson

Þýðandi: Tómas R

12 klst 19 mín
Mál og menning

Um bókina

Síðasta kvöldmáltíðin er víðfrægt listaverk sem meistari Leonardo da Vinci málaði á klausturvegg í Mílanó fyrir meira en fimm hundruð árum. En er hugsanlegt að í þessu stórbrotna verki séu enn þann dag í dag falin sérstæð og áhrifamikil skilaboð sem fáir þekkja og skilja?

Í janúar 1497 er svartmunkurinn og rannsóknardómarinn Agostino Leyre gerður úr frá Páfagarði til að kanna hvað hæft sé í nafnlausum ásökunum um að guðlast og villutrú þrífist undir verndarvæng Lodovicos hertoga í Mílanó.

Í nýju klaustri sem hertoginn hefur látið reisa er Leonardo da Vinci að ljúka við að mála Síðustu kvöldmáltíðina og margir munkanna í klaustrinu trúa því að í verkinu leynist annað og meira en kristileg túlkun á guðspjöllunum: dulin tákn og jafnvel einhvers konar galdur. Mikið starf bíður rannsóknardómarans en fyrr en varir setja sérkennilegir atburðir og óvænt dauðsföll strik í reikninginn.

Leynda kvöldmáltíðin eftir Spánverjann Javier Sierra hefur farið sigurför um heiminn, enda er hér á ferð æsispennandi saga um ráðgátur, kukl og morð í myrku umhverfi miðalda.

Tómas R. Einarsson þýddi. Arnar Jónsson les.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán