Heim › ...
Leikvöllurinn eftir Lars Kepler - hljóðbók

Leikvöllurinn

13 klst 31 mín
Forlagið

Um bókina

Jasmin Pascal-Anderson er liðsforingi í sænska hernum. Við skyldustörf á vegum NATO í Kosovo særist hún alvarlega og hjarta hennar stöðvast í eina mínútu og fjörtíu sekúndur. Þegar hún kemst til meðvitundar segir hún frá því að á milli lífs og dauða sé ógnvænlegur staður, ofbeldisfull hafnarborg þar sem von um líf gengur kaupum og sölum. Og versti staðurinn þar er leikvöllurinn.

Þegar þarf að stöðva hjarta sonar hennar í örstutta stund í aðgerð eftir alvarlegt bílslys treystir Jasmin drengnum ekki til að hafa það af einsamall í heiminum hinu megin. Þá eru engin ráð önnur en að fylgja honum yfir um…

Leikvöllurinn er sjötta spennubók Lars Kepler en á bak við það nafn standa hjónin Alexandra og Alexander Ahndoril. Fyrri bækur þeirra hafa notið mikilla vinsælda víða um heim og verið þýddar á fjölda tungumála. Halla Kjartansdóttir þýddi. Margrét Örnólfsdóttir les.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán