Heim › ...
Leikurinn eftir Lisa Bjärbo - rafbók

Leikurinn

Rafbók
Mál og menning

Um bókina

Elías getur varla slitið sig frá nýja tölvuleiknum sínum. Hann gerist á eyðilegum bóndabæ og gengur út á að forða sér frá brjáluðum kanínum sem þvælast um húsið og skóginn í kring. Þær virðast hafa stökkbreyst eða smitast af hræðilegum sjúkdómi, að minnsta kosti ráðast þær á allt sem hreyfist. Þetta hljómar kannski ekki svo hræðilega – en er það!

Eitt kvöldið uppgötvar Elías að bóndabærinn er til í alvörunni og stendur bara rétt fyrir utan heimabæ hans. Og það sem verra er, það er eitthvað mikið að kanínunum þar líka.

Leikurinn er fyrsta bókin í bókaflokknum Smit eftir Lisu Bjärbo, með hrollvekjandi litmyndum eftir Kim W. Andersson. Þorir þú að lesa?

Eiríkur Örn Norðdahl þýddi.

SMIT_Kennsluleidbeiningar – Hér er hægt er að nálgast fríar kennsluleiðbeiningar fyrir þessa bók.

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%2.790 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.