Heim › ...

Lávarður deyr
6 klst 39 mín
Drungi
Um bókina
Agatha Christie er meistari glæpasagnanna. Þetta er fyrsta hljóðbókin í nýrri bókaröð með góðum spennusögum sem Ragnar Jónasson, rithöfundur, hefur valið. Lafði Edgware, fræg leikkona, leitar á fund Hercule Poirots og kveðst þurfa að losna við eiginmann sinn. Poirot fer á fund lávarðarins til að biðja hann um skilnað fyrir hönd lafðinnar. Lávarðurinn finnst síðan myrtur á heimili sínu og grunur fellur á eiginkonu hans. Aðrir koma þó til greina og raunar mun frekar en lafði Edgware.
En málið virðist flóknara þegar betur er að gáð og fleiri látast á voveiflegan hátt þar þar á meðal sumir þeir sem lágu undir grun. Lesari er Rúnar Freyr Gíslason.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app