Heim › ...
L.E.Y.N.D. eftir L. Marie Adeline - hljóðbók

L.E.Y.N.D.

7 klst 46 mín
Vaka-Helgafell/Forlagið

Um bókina

„Þessi maður! Hvað get ég sagt? Matilda hafði rétt fyrir sér. Hann var svo djöfull sexí … hann gekk hægt til mín eins og köttur og ég hörfaði þangað til ég rak hnésbæturnar í rúmið. Og þá sendi hann mig ofan í það með því að ýta blíðlega við mér, hann lyfti pilsinu mínu og aðskildi fótleggina. Ég dró kodda yfir andlitið þegar hann sagði einu orðin sem hann sagði þann daginn: Þú ert svo helvíti falleg. Og svo færði hann mér alsælu sem ég get í rauninni ekki lýst hérna en ég ætla samt að reyna …“

Cassie Robichaud lifir ekki spennandi lífi. Hún vinnur á kaffihúsi og fer síðan heim í litlu íbúðina sína. Karlmann hefur hún ekki haft í lífi sínu eftir að hún varð ekkja fyrir fimm árum og þar á undan var tilveran sannarlega ekki full af ást og gleði. En daginn sem dularfull minnisbók gleymist á kaffihúsinu breytist allt. Það litla sem Cassie les í bókinni kitlar og hneykslar og kemur henni að lokum í samband við L.E.Y.N.D., leynisamtök í New Orleans sem hjálpa konum að raungera erótískar fantasíur sínar og verða kynferðislega lifandi. Fyrr en varir er Cassie komin af stað í tíu skrefa ferli samtakanna þar sem hver fantasían rekur aðra og hver folinn af öðrum fullnægir öllum hennar þörfum – jafnvel þeim sem hún hafði ekki hugmynd um að hún byggi yfir. L. Marie Adeline er dulnefni kanadísks metsöluhöfundar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán