Heim › ...
Kvenskörungar á Grand Hótel eftir Ruth Kvarnström-Jones - hljóðbók

Kvenskörungar á Grand Hótel

15 klst 9 mín
Benedikt bókaútgáfa

Um bókina

Á Grand Hôtel í hjarta Stokkhólms fléttast saman líf, draumar og örlög kvenna sem neita að láta sér segjast þegar kemur að því að taka pláss.

1901. Hótelið stendur á tímamótum – og það gera konurnar sem þar starfa líka. Þær eiga allar sína ólíku fortíð en eiga það sameiginlegt að vilja skapa sér framtíð í heimi sem er ekki endilega tilbúinn að gefa þeim tækifæri. Hin unga Ottilia fær starf á hótelinu og skilur fjölskyldu sína eftir í sveitinni full vonar um nýtt líf. En á bak við glæsileikann og lúxusinn reynist grimmur veruleiki: hótelið er gjaldþrota. Til að snúa stöðunni við er Wilhelmina Skogh skipuð framkvæmdastjóri. Þegar karlarnir á hótelinu gera uppreisn gegn nýja yfirmanninum bregður Wilhelmina á það ráð að velja saman hóp kvenna til að halda hótelinu opnu. Saman takast þær á við ástir, svik og samfélagslegar skorður en þegar leyndarmál fortíðarinnar koma upp á yfirborðið reynir á traustið og hverju þær eru tilbúnar að fórna.

Kvenskörungar á Grand Hôtel er fyrsta bókin í grípandi og rómantískum bókaflokki Ruth Kvarnström-Jones sem hefur farið sigurför um öll Norðurlönd og víða í Evrópu.

Valgerður Bjarnadóttir þýddi.

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Hlustaðu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni