Heim › ...

Um bókina
Hið illa er komið á kreik.
Höfuðlaust lík finnst í hraungjótu við Krýsuvík. Skammt frá líkinu rekst lögreglumaðurinn Hörður Grímsson á mannspil sem morðinginn hefur ef til vill komið fyrir.
Lögreglan á Blönduósi stöðvar bíl vegna hraðaksturs. Undir stýri situr Kinga Jedynak, ungur pólkskur innflytjandi. Í skotti bílsins er pappakassi sem hún sótti á verkstæði í Varmahlíð. Í kassanum er hryllingur sem ekki þolir dagsljósið.
Hörður Grímsson hefur sinn hátt á að leysa erfið sakamál í spennutryllum Stefáns Mána. Hér verður hann að taka á öllu sínu til að leysa flóknar ráðgátur sem fléttast saman á ófyrirsjáanlegan hátt.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app