Heim › ...

Um bókina
Inga Dagný Eydal hefur í nokkur ár glímt við afleiðingar þess að hafa veikst af of mikilli streitu og ekki getað stundað fasta vinnu síðan hún hætti í erilsömu starfi sem hjúkrunarfræðingur. Hér segir Inga Dagný sögu sína og birtir brot úr dagbókum. Auk þess segir hún frá fólkinu sínu sem sumt þurfti einnig að takast á við áföll og alvarlega sjúkdóma. Konan sem datt upp stigann er saga konu sem tekst á við kulnun af æðruleysi en kemur líka oft auga á broslegu hliðarnar. Hún lítur gagnrýnum augum til fortíðar um leið og hún horfir fram á veginn í leit að lausnum og bata.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app