Heim › ...
Konan í dalnum og dæturnar sjö: Saga húsfreyjunnar á Merkigili í Austurdal Moniku Helgadóttur eftir Guðmundur G. Hagalín - hljóðbók

Konan í dalnum og dæturnar sjö: Saga húsfreyjunnar á Merkigili í Austurdal Moniku Helgadóttur

10 klst 14 mín
Hljóðbók.is

Um bókina

Ævisaga Moniku á Merkigili er hetjusaga af lífsstríði og þrekraunum fólksins á síðasta bænum í dalnum. Bókin kom út árið 1954 og var söguhetjan Monika Helgadóttir þá 53 ára að aldri. Hún bjó þá og um áratugi þar á eftir ekkja á sínu afskekkta býli með sjö dætrum og einkasyni.

Í sex áratugi hefur bókin Konan í dalnum og dæturnar sjö verið umsetin í fornbókaverslunum og á bókasöfnum. Hún nýtur nú meiri vinsælda en nokkur önnur bók eftir Guðmund G. Hagalín.

Í meðförum Hagalíns verður Monika á Merkigili ekki aðeins Barnmörg húsfreyja í sveit heldur táknmynd íslensku sveitakonunnar. Konunnar sem borið hefur þjóð sína í móðurörmum og umvafið hana með fórnfýsi og kærleika öld eftir öld.

Konan í dalnum og dæturnar sjö kemur nú út í nákvæmri eftirgerð fyrri útgáfu með stuttum eftirmála sem unninn er í samvinnu við Skarphéðin, einkason Moniku.

Gunnar Stefánsson les formála og eftirmála.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán