Heim › ...
Kokkáll eftir Dóri DNA - hljóðbók

Kokkáll

Höfundur: Dóri DNA

Flytjandi: Halldór Halldórsson

8 klst 44 mín
Bjartur

Um bókina

Örn, sem er sætur og vinnur á auglýsingastofu, býður kærustunni sinni, Hrafnhildi, í helgarferð til Chicago að fagna óvænt batnandi skuldastöðu sinni. Þar verður á vegi þeirra hinn hörundsdökki og stimamjúki Tyrone, og ekkert verður aftur samt.

Þegar saman við blandast æskuvinir Arnar, hin þroskahamlaða Andrea og þverhausinn Hallur, verður úr eldfimur kokkteill sem hlýtur að springa með hvelli. Kokkáll er kraftmikil og skemmtileg samtímasaga, á köflum harðsoðin en alltaf humorísk, þar sem Dóri DNA lýsir af hispursleysi samskiptum kynjanna, spennu milli kynþátta og ættgengum harmi kynslóðanna, án þess að líta framhjá aflinu sem býr í einlægri vináttu.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán